<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, janúar 30, 2004

Smá samtal sem segir aðeins frá lífi mínu um þessar mundir.
Sólan says:
en þrettán dagar hvað...
Sólan says:
ertu komin þrettán daga yfir....
- 13 dagar says:
he he - ekki alveg -
- 13 dagar says:
13 dagar í kosningar
- 13 dagar says:
þangað til ég kemst í frí
Sólan says:
solleis
- 13 dagar says:
hef varla getað andað síðustu vikur
Sólan says:
hvörslags
- 13 dagar says:
já það er bara allt vitlaust að gera - það virðist enginn geta gert neitt án mín
- 13 dagar says:
var fundarstjóri í ræðukeppni, spyrill í spurningakeppni - skemmtari í Akureyrarferð
Sólan says:
það er erfitt að vera popular
- 13 dagar says:
já alveg fullt starf
Sólan says:
nohh...
- 13 dagar says:
svo tók ég að mér að vera í Bifrónefnd líka
- 13 dagar says:
verð bara að faraa að læra að segja nei
|

fimmtudagur, janúar 29, 2004

Jú jú aldeilis komin heim
bara búin að vera alveg hrekalega busy síðustu daga, var t.d til klukkan 4 í nótt að gera verkefni í fjármálastjórnun, ég veit þetta er bilun, ég sem er yfirleitt farin að sofa fyrir miðnætti. Veit samt ekki alveg hversu mikið vit var í þessu verkefni, örugglega álíka mikið og í kollinum á mér eftir miðnætti.

SVo maður tali nú um e-ð skemmtilegt þá var Akureyrarferðin algjör snilld - takk fyrir mig Eyrún - Matur á greifanum á föstudag og laugardag - namm fékk mér svo gott á laugardagskvöldinu - e-ð bombu eitthvað man ekki en það var geggjaðslega gott!!!! Kíktum á sveitaball á föstudagskvöldinu en við Rósa stoppuðum bara stutt þar af því að Mundi og Berti vildu endilega draga okkur á Kaffi Akureyri og við létum til leiðast og skelltum okkur - minns hékk reyndar meirihlutakvöldsins á barnum með Munda og Hirti. Mundi var að spá því fyrir mér að ég yrði gift eftir tvö ár, hverjum?? það verður ekki gefið upp hér C")
Á laugardaginn svaf ég svo allan daginn eða þangað til haldið var í vísindaferð í Viking Brugg þar sem var gengið um og drukkinn bjór. Skellti mér svo í góða matinn á Greifann með Lísu skvísu og fleiri gellum. SVo héldum við á Sjallapapaball þar sem var djammað og dansað fram á morgun. Hélt svo í morgunmat í Smárahlið, minnir mig að það heiti. Og svo í ævintýralega heimferð.
|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?